Reykjavik Showreel

Hver erum við?

  • hann/honum/hans

    Aron er með BA í sviðslistum af Sviðshöfundabraut LHÍ og er að ljúka MA í ritlist hjá HÍ. Hann starfar meðal annars sem sviðsstjóri í Tjarnarbíó en áður var hann tæknistjóri. Hann starfar einnig sem leikmyndahönnuður fyrir auglýsingar, bíómyndir og sjónvarp og sem ljósahönnuður fyrir hinar ýmsu leiksýningar. Aron hefur leikstýrt fjölda sýninga hjá leikfélögum um allt land en helst má nefna söngleik sem hann skrifaði fyrir Leikfélag Menntaskólans á Akureyri upp úr tónlist 200.000 Naglbíta sem ber nafnið Hjartagull sem hann einnig leikstýrði.

    aron@reykjavikshowreel.is

  • hán/háni/háns

    Elísabet er með BA í leiklist frá leikarabraut LHÍ og MA í leiklist frá Liverpool Institute for Performing Arts. Hán hefur leikið í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum ásamt því að hafa leikstýrt áhugaleikfélögum og kennt leiklist í yfir 10 ár. Hán er einnig með diplomu í nútímalistdansi. Elísabet hefur sótt námskeið í nándarþjálfun og er einnig menntaður jógakennari.

    info@reykjavikshowreel.is

  • hann/honum/hans

    Stefán er útskrifaður Sviðshöfundur frá LHÍ. Hann hefur starfað á auglýsingastofum, verið framkvæmdastjóri Improv Ísland og uppistandshópsins VHS. Hann var markaðstjóri Kanarí og í markaðsdeild Indó. Stefán Ingvar var tæknistjóri í Tjarnarbíó og heldur úti hlaðvarpinu Ekkert að þakka. Stefán starfar einnig sem pistlahöfundur, dramatúrg og uppistandari.

Showreel

Pakkar

Beisik

49.900 ISK

Ein tveggja persónu sena.

Vinsælt

79.900 ISK

Tvær tveggja persónu senur.

Sóló

25.000 ISK

Ein einræða í self-tape stúdíóinu okkar.

VÆNTANLEGT

Viðskiptavinir okkar

Loksins komið svona batterí á Íslandi! Þjónustan er ótrúlega góð, vinnubrögðin professional og þau ná að skapa ótrúlega þægilegt andrúmsloft til að vinna í . Þau vita nákvæmlega hvað þau eru að gera.

Fjölnir Gíslason, leikari og hlaðvarpsstjórnandi

Verkin Okkar

Dæmi um showreel sem við höfum gert fyrir viðskiptavini okkar

VÆNTANLEGT


Self Tape Stúdíóið

Við bjóðum upp á aðstöðu fyrir þig til að taka upp professional self-tape.

Við erum með þrífót, 4K myndavél, stúdíó ljós, flott backdrop og góða hljóðdempun í rýminu.

Þú getur bókað tíma í stúdíóið á info@reykjavikshowreel.is.
Vinsamlegast taktu fram hvort þú útvegir lesara sjálf/sjálft/sjálfur annars sjáum við um það fyrir þig (FRÍTT!)

1 klst
(Inniheldur æfingu og leikstjórn)
7000 ISK

1,5 klst
(Inniheldur æfingu og leikstjórn)
8500 ISK

2 klst
(Inniheldur æfingu og leikstjórn)
10.000 ISK

FAQs

  • Við erum eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í að framleiða showreel fyrir leikara og dansara


    Við höfum víðtæka reynslu bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Okkar markmið er að framleiða hágæða showreel sem hentar þínum markmiðum, þínu castability og sýnir hæfileika þína í réttu ljósi.

    Hver sena er sérsniðin að þér; þínu castability og markmiðum.

  • Reykjavík Showreel býður upp á showreel fyrir öll sem hafa áhuga! Einnig getur hver sem er komið og nýtt sér self tape stúdíóið okkar.

  • Í Beisik pakkanum færðu 3ja tíma tökudag ásamt undirbúningsfundi (pre-production).

    Á undirbúningsfundinum förum við yfir hver þín markmið eru og hvað þú vilt fá út úr þínu showreeli. Við getum aðstoðað þig við val á senu eða skrifað nýja handa þér.


    Í Vinsæla pakkanum okkar er allt það sama innifalið og í Beisik pakkanum nema teknar eru upp tvær senur á 6 klst tökudegi. ATH. ekki er hægt að skipta Vinsæla pakkanum niður á 2 tökudaga.

  • Já.

    Fyrir showreel pakka biðjum við viðskiptavini að greiða 50% af heildarupphæð fyrirfram. Staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt. Eftirstandandi upphæð þarf síðan að greiða ekki seinna en 7 dögum eftir að tökum lýkur og áður en við sendum frá okkur efnið.

  • Þú reddar mótleikara, búningum og leikmunum sé þess þörf fyrir senuna þína.

  • Þú velur senu milli tveggja persóna sem er ca 2 - 2,5 mínútur að lengd. Senan getur verið úr sjónvarpsþáttum, kvikmyndum eða frumsamið efni. Við bjóðum einnig upp á að skrifa fyrir þig senu sem er sérsniðin að þér og þínu castability.

    Athugið að við tökum ekki við senum sem innihalda slagsmál, CGI eða dýr.

  • Til þess að halda kostnaðinum okkar í lágmarki og eiga möguleika á því að veita þér lágt verð, þá notfærum við okkur tökustaði sem eru okkur kostnaðarlausir. Það þýðir að við tökum oft upp utandyra.

    Ef þú hefur sjálf/sjálft/sjálfur aðstöðu sem þú vilt nýta í tökurnar máttu láta þær upplýsingar fylgja við bókun.

    Við tökum upp í flestum veðrum en áskilum okkur þeim rétti að endurbóka ef veður telst óhagstætt eða hættulegt.

  • Þú getur hætt við bókunina þína hvenær sem er en athugaðu að staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt.

    Alltaf er hægt að færa bókunina til en ef gefinn er minni en 10 daga fyrirvari á breytingum er rukkað allt að 8000 kr breytingagjald.

  • Showreel er mikilvægt markaðstól fyrir þig - ásamt headshot mynd og ferilskrá - til að koma þér á framfæri. Showreel gæti reynst þér vel ef:

    • Þú ert ný/r/tt í bransanum og átt ekki efni í showreel

    • Þú ert með umboðsmann, þá getur showreel hjálpað þeim að markaðssetja þig og koma þér í réttu verkefnin

    • Þú ert að leitast við að endurskilgreina þig sem listamann (rebrand)

    • Þú átt showreel en það sýnir ekki hæfileika þína í réttu ljósi. T.d. þú ert með nýtt lúkk, það er gamalt efni í því, það sýnir ekki þau hlutverk sem þig langar að leika osfrv.

Tökum spjall!

Ef þú ert með einhverjar spurningar þá endilega spjallaðu við okkur!